View cart “Bekkur úr Bambusvið W: 38 H: 45 L: 100” has been added to your cart.
Skál Ultima Thule 20cm
Ultima Thule línan var hönnuð af Tapio Wirkkala árið 1968. Við hönnun línunnar sótti Wirkkala innblástur til Lapplands en línan vísar í bráðinn klaka. Sagan segir að til hafi verið eyjan Ultima Thule sem staðsett var langt í norðri. Hún hafi verið grafin í ís og snjó og þar hafi sólin aldrei sést.
Fjölhæfi snillingurinn Tapio Wirkkala var talinn brautryðjandi í finnskri nútíma iðnaðarlist. Wirkkala fékk alþjóðlega viðurkenningu fyrir glerhönnun sína og var hans mesti innblástur heimaland hans, Finnland.
Glæsileg hönnun Ultima Thule skálarinnar er falleg á matarborðið og hentar vel fyrir kalda rétti, salat eða deserta.
14.490 kr.
In stock
Categories Allar Vörur, Iittala, Stofa