Bliss Vasi | Glær

Formið á Bliss er mjúkt og áreynslulaust en kúlu formið hefur ávallt heillað mig. Í æsku eignaðist ég spegil með slíku formi sem hafði verið vinsæll á áttundaáratugnum en svo skemmtilega vildi til að ég rakst á hann á flóamarkaði og einhvern veginn festis hann í huga mér og vasinn Bliss varð til. Vasinn ernútímalegur með smá yfirbragð áttunda áratugarins sem gefur hverju rýmiaukna gleði og hamingju. Hver er þín hamingja?

Vasinn er gerður úr heillituðu gleri.

Framleitt: Portúgal

Stærð: Hæð 26 cm x Þvermál kúla 19 cm.

Athugið að opið á vasanum er handskorið svo hver vasi er einstakur.

19.990 kr.

Uppselt

Viltu fá póst þegar varan kemur aftur

Add to cart