Skál Ultima Thule 20cm

Ultima Thule línan var hönnuð af Tapio Wirkkala árið 1968. Við hönnun línunnar sótti Wirkkala innblástur til Lapplands en línan vísar í bráðinn klaka. Sagan segir að til hafi verið eyjan Ultima Thule sem staðsett var langt í norðri. Hún hafi verið grafin í ís og snjó og þar hafi sólin aldrei sést.

Fjölhæfi snillingurinn Tapio Wirkkala var talinn brautryðjandi í finnskri nútíma iðnaðarlist.  Wirkkala fékk alþjóðlega viðurkenningu fyrir glerhönnun sína og var hans mesti innblástur heimaland hans, Finnland.

Glæsileg hönnun Ultima Thule skálarinnar er falleg á matarborðið og hentar vel fyrir kalda rétti, salat eða deserta.

14.490 kr.

In stock

Categories , ,
Add to cart