Ræktunarpottur 2 hólf – Aðeins til í netverslun

Sjálfvirk vökvun
2 hólf
Basilíka og krulluð steinselja fylgja
Hæðarstillanleg LED lýsing

VÖRULÝSING:

Ræktaðu kryddjurtir, grænmeti eða jafnvel blóm allan ársins hring án vandræða með ræktunarpottunum frá Véritable.
Stingdu í samband, fylltu á vatnið, settu Lingot í og tækið sér um sig sjálft í allt að 3 vikur.
Með sérhannaðri hæðarstillanlegri LED lýsingu sér tækið til þess að ljósið veiti kjörið birturóf fyrir plönturnar og líki eftir náttúrulegum sólargangi, þ.e. 16 klst. af birtu og 8 klst. af myrkri.
Hlutlausa áveitukerfið sér til þess að ekki þurfi að vökva plönturnar heldur sé nóg að fylla á vatnið af og til.
Lingot einingarnar fyrir Véritable ræktunarpottana innihalda alla þá næringu sem að plönturnar þurfa á að halda svo ekki þarf að huga að viðbættri næringu.
Saman myndar þetta eina heild sem sér til þess að þú getir verið með ferskar kryddjurtir eða grænmeti til taks í eldhúsinu þegar að þér hentar.

Botaneo er fyrirferðarlítill og hentar því vel í minni eldhús þar sem að pláss er af skornum skammti. Með fylgja 2 Lingot fræeiningar til þess að koma þér af stað í ræktuninni.

Lingot einingarnar sem fylgja eru basilíka og krulluð steinselja.

Stærðir

Stærð (B x H x D):

17,4 x 46 x 18,4 cm

Vatnstankur:

1 lítri

Eiginleikar

Hitastigssvið:

18 – 35°C

Vökvunarkerfi:

Hlutlaus vökvaræktun

14.990 kr.

In stock

Categories ,
Add to cart