Alvar Aalto vasi 251 mm

Alvar Aalto línan frá Iittala er, eins og nafnið gefur til kynna, hönnuð af hinum goðsagnakennda hönnuði Alvar Aalto. Þekktasta varan hans er Aalto vasinn sem hann frumsýndi á heimssýningunni í París árið 1936 og má segja að sé í dag eitt af táknum skandinavískar nútímahönnunar. Hver og einn vasi er munnblásinn í glerverksmiðju Iittala í Finnlandi og þarf 7 sérþjálfaða starfsmenn til verksins.

30.990 kr.

In stock

Categories , ,
Add to cart